|
|
||
Uppfærð síðast 20.ágúst 2011 Pálsfjall á Vatnajökli |
||
|
Myndir
|
Heimasíðan okkar í Knarrarholti Atli Eggertsson - Linda Ósk Högnadóttir - Arnþór Ósmann Atlason - Hrannar Örn Atlason - Högni Jökull Atlason - Ásgeir Jaki Atlason - Katla Lind Atladóttir |
Tenglar
|
|
Nú til dags fara bara allir á Facebook Þannig að myndirnar eru hér: Atli - Linda Og myndböndin eru hér: youtube
Sumar 2011
Í Svartárdal
Í kaffi til ömmu
Krossá Láum í ferðalögum mest allan ágúst - sjá á FB
Guðlaugur Ólafsson Melhaga Heill þér kæri vinur.
Sumarfrí 2009
Sumarbaðið Láum í ferðalögum mest allan júlí og eitthvað fram í ágúst. Mergjað sumarfrí með geggjuðu fólki :-) Ferðasagan kemur síðar. Hér eru myndir ósnyrtar og órakaðar.
Blaðafjölskyldan Knarraholt Skemmtileg grein um bílasmíði:
Lenging á 4Runner.
4Runner í breytingu Undanfarið hafa staðið yfir breytingar á 4Runner. Það var orðið heldur þröngt um okkur 6 í gamla 4Runner, þannig að ákveðið var að endurbæta hann aðeins. Frásögn í máli og myndum kemur síðar. Hér eru nokkrar myndir úr breytingar ferlinu.
Strútur 1-3 maí 2008
Strútslaug. Hér er lesmál og myndir.
Hveravellir og Gíslaskáli 7-9 mars
Stórfjölskyldan í Knarrarholti í bíltúr á fjöllum. Mynd stolin af Jens Enn þá erum við löt að skrifa, enn það var samt rosalega gaman og gott bað. enda framúr skarandi skemmtilegt fólk saman komið í hóp. Myndir frá Jens eru hér og Birki hér og okkur hér Þorrablót 2008
Kjarkfólk fór í Hjartafellslaugina, 2 tímum fyrir fárviðri. Hér er frásögn af þorrablótsferð frá Birki og myndir og nokkrar myndir frá okkur úr þessari köldu ferð. Við þurfum svo að fara að standa okkur betur í að rifja upp ferðir vetrarins... Enn við erum búin að fara í nokkuð margar ferðir í vetur..
Landmannalaugar milli jóla og nýárs
Mynd innan úr laugum, stolin af Birki Hér eru myndir frá Birki, það kemur síðar meira frá okkur...
Þegar piparkökur bakast...
Arnþór og Hrannar í piparkökugerð í Laxárdal.
Sólarlag í Knarraholti
Mynd stolin af Birki vini mínum. Við fórum í Landmannaaugar helgina 17-18 nóv með góðum ferðafélögum, þó svo að það hafi vantað marga góða. Mikið Etið, mikið baðað sig og mikið sofið. Myndir frá okkur koma síðar, en hér eru myndir frá Birki og Malin.
Of stór fjölskylda, eða hvað....
Hvað gerir maður þegar fjölskyldan passar ekki í bílinn?
Arnþór Ósmann Atlason 8 ára
Pakkaleikir og skemmtileg heit. Að þessu sinni var það Mustangs kaka. Arnþór Ósmann eldist og eldist og er nú orðinn 8ára gamall. Í tilefni dagsins bauð hann bekknum sínum í afmælisveislu þar sem í boði voru pizzur og afmæliskaka sem að þessu sinni var Mustang 2006. Hann fékk fult af flottum gjöfum, allir skemmtu sér vel við leik úti sem inni, enda veðrið sérdeilis gott. Afmæliskökur eru orðnar nokkuð margar, hér eru sýnishorn af því sem við höfum gert:: Traktor, stór traktor, skip, Geimskip, Hummer, einn einn traktor Sjá myndir hér.
Grinda skipti 4Runner
Viðskilnaður grindar og yfirbyggingar. Sjá myndir hér.
Voða mikið að gera hjá Knarrarholts-fjölsk.
Talið frá visntri: 4Runner, Bólstaður, Þjórsá ísilögð. Tekið inn við Sóleyjarhöfða (Þjórsárver) í fyrravetur. Til hamingju með börnin Eyþór og Bjarney, og Birkir og Malin.
19. Júlí 2007 komu Högni Jökull & Ásgeir Jaki í heiminn
Högni Jökull og Ásgeir Jaki Og hér er síðan þeirra :-)
Smá útilega 13.-16. Júlí 2007
Arnþór Ósmann og Hrannar Örn á hlaupum í flæðamálinu. Snæfellsjökull í baksýn.
Gifting 070707 Grindavík og Laxárdal.
Eyja og Eyi Vöru kát með daginn Bjarney og Eyþór giftu sig 7. júli 2007. Giftingin fór fram í Gringarvíkurkirkju. Eftir Kirkju var boðið í hússkoðun heim til þeirra, í ný byggt hús að Austurhópi 17. Þar á eftir var haldin heljarinar veisla í hlöðunnu í Laxárdal, en við heldum einnig veislu í hlöðunni þegar við Linda giftum okkur 3.júní 2006. Þessi dagur var alveg frábær, bæði veisla og athöfn. Megi ykkur farnast vel í ókominni framtíð! Myndir eru hér.
Skírn
Högni Jökull hjá pabba og Ásgeir Jaki hjá mömmu. Litlu Tvíburarnir í Knarrarholti voru skírðir og fengu nöfn sunnudaginn 5.ágúst. A fékk nafnið Högni Jökull og er skírður eftir afa sínum í Laxárdal. B fékk nafnið Ásgeir Jaki eftir langafa sínum í Holtsmúla. Skírnarvotta voru Helena og Bjarney, og presturinn okkar hann sr.Axel skírði í kirkjunni á Stóra-Núpi. Eftir skírn var haldin smá skírnarveisla, þar mættu systkini foreldrana, afar og ömmur, lang-afar og lang-ömmur. Litlu drengirnir sváfu vært meðan gestirnir fengu sér kaffi og meðlæti. Strax eftir veisluna drifum við okkur öll sex á Stuðmanna tónleika í Laugardalum, þar sem allar skemmtu sér mjög vel.
Sumar - Sumar - Sumar
Skuggafoss
Árleg hestaferð Laxárdalsfjölskyldunar
Brenna á eyrum krossár, Eyjafjallajökull í basksýn Fjölskyldan og vinir fóru í gífurlega góða ferð í Þórsmörk Hér er ferðasagan í myndum og máli.
Eðalferð í Strút um Hvítasunnuna
Snæðingur í Strút. Hér eru myndir og ferðasagan.
|
||