Grindarskipti í 4Runner

Það lá fyrir þegar við keyptum 4Runner á sínum tíma að innan skams þyrfti að athuga  með aftarihluta grindarinar,

því hún var orðin haug riðguð og farin að myndast göt vegna þess að vatn og skítur komst alltaf á milli grindar og "riðvarnar",

en fremri hlutinn var nánast eins og nýr.

Því keyptum við fljótlega bíl sem hafði lent í veltu, en var nánast óriðgaður, vegna þess að hann hafði aldrei verið "riðvarinn".

Um páska 2006 kom brestur í grindina  sem ég reyndar sauð í, en eftir það var farið að hugsa verulega um þetta mál.

Það var svo ekki fyrr en núna haustið 2007 sem rokið var í verkið, með góðri hjálp tengdó og Eyþórs grindvíkings.

 

 

Verið að fjarlægja boddy´ið af líffæragjafanum. Áhorfendur fylgjast spenntir með í brekkunni.

 

 

Þá var næst að strípa grindina og hreinsa upp.

 

 

Búið að koma fyrir loftkút og síka þverstífu turn.  Eyþór búinn að sprauta.  Þar sem ekki sá á fremrihluta á okkar grind,

 notuðum við fremri hlutan af okkar grind, frekar en að færa hásingu og vélbúnað á milli.

 

 

Búið að fullgera nýju grindina og þá var að vippa boddy´inu af okkar bíl.

 

 

Búið að strípa aftari hlutan á okkar grind og verið að koma grindinni inn í skemmu í Laxárdal.

 

 

Kominn inn, sést vel hér hve grindin var orðin léleg, aftasti þverbitinn horfinn vegna gallaðar riðvarnar á sínum tíma,

eins og á flestum 4Runner bílum að aftan sem voru "riðvarðir" með harðri tjöru.

 

 

Hér sést enn betur hve ílla hún var farinn, en að öðru leiti er bíllinn okkar nánast óriðgaður,

 

 

Verið að skeyta saman nýja og gamla hluta. Eyþór með vinkil á lofti.

 

 

Verið að sjóða saman, Arnþór Ósmann fylgist með að allt fari vel fram.

 

 

Hér er að verða kominn mynd á þetta, allt komið á grindina sem var á henni, að auki aukabensín tanks og loftkúts.

 

 

Við ákváðum að snúa liðhúsum fyrst að þetta lá svona vel við.

 

 

Búið að sjóða saman, spindil hallinn orðinn um 10°

 

 

Allt komið saman og grindin komin út. Haddi að snara grindina svo hægt sé að hífa hana upp á vagn.

 

 

Á heimleið.

 

 

... og komin heim.

 

 

Verið að gera boddy klárt fyrir samsetningu.

 

 

 

Allt að skríða saman.

 

 

Boddy komið á grind og allt passaði 100%, bara eftir að ganga frá semsetningum.

 

 

4Runner með nýja tengdamömmu boxið og  Linda Ósk  komin á fjöll á ný, betri en nokkrum sinnum áður.

 

 

 Heima síðan okkar í Knarrarholti

 Atli E.