Hestaferðin sem ekki var farin.

Þórsmörk Jónsmessu helgina  22. -24.Júní 2007

 
 

Skagfjörðsskáli í Langadal, Þórsmörk

 

Að sökum þess hve stór hluti afkomenda Laxárdalshjónanna er barnshafandi var ákveðið að fara hina árlegu hestaferð á bílum inn í Þórsmörk,
með enga hesta.

 

Þannig vildi svo til að Birki og Malín ætluðu í busluferð þessa helgi, líka inn í mörk. Með þeim komu , Doddi, Brynhildur og Jens.
Þannig að þarna sameinuðust fjölskyldan og vinir og tókst úr því hin allra besta ferð.
 
Við Linda, strákarnir og Kristinn fórum fyrst í Mörkina og komum okkur fyrir í nýja tjaldinu.
Eftir það fór ég svo til baka til að sel-flytja Eyju og Eyja, því vegurinn inn í Mörk er ekki sá allra besti fyrir nýja fólksbíla.
Svo seinna um kvöldið komu Birki og Malín, Doddi og Brynhildur og börnum og Jens. Á laugardaginn kom svo tengdóið og Guðni Björgvin.
 
Skemmst er frá því að segja að ferðin var frábær, enda hiti um 20° og sól og lygnt inn á milli trjánna og tjaldanna.  Verst hvað helgarnar eru fljótar að líða.

 

 

 

 

Strákunum hlakkaði mest til að sjá stóra-traktorinn sem þeir mundu eftir frá því fyrir 3 árum síðan
 

 

 

Frú mín góð er orðin ansi framsett

 

Birkir og Malin koma með látum inn í Mörkina

 

Börnin að leika sér í lækjunum (Birkir að baða strákana)

 

Birkir og Malin komu með frostpinna í þurrís. Vakti óneitanlega undran og mikla hrifningu að fá ís í öllum hitanum

 

Eldað, etið og drukkið af miklum móð.

 

Rólegt og gott

 

Varðeldur á bökkum Krossár, Eyjafjallajökull í baksýn.

 

Litlu snáðarnir laggstir til svefns í tjaldinu sem er 3. herbergja.

 

Kókó puffs í morgunmat um helgar... líka á ferðalögum

 

Arnþór duglegur að finna sér staði til að leika á með traktorana sína

 

Takk fyrir frábæra ferð öll sömul.

Sjá myndir hér frá okkur og Birki hér.

Til Baka

Allar stafsetnigar og ritvillur eru aðeins hugsaðar sem þjálfun fyrir lesandann.