Tvíburarnir í Knarrarholti

Fæddir 19.júlí kl. 22.07 og 22.08, í lok góðrar tjaldútilegu.

 

 

 

Í sandfjörunni við Akra á Mýrum, sunnudaginn 15. júlí í frábæru veðri með Birki og Malín,  Eyþóri og Bjarneyju í tjaldútilegu.

 

 

Pizzu veisla 16. júní á tjaldsæðinu í Laugardal rétt um kl. 22.00,  tíu mínútum áður en Linda missti vatnið. Við enduðum ferðalagið í Rvk., því að Linda átti að mæta í skoðun 17. júlí og var talað um að setja hana jafnvel af stað þann dag. Því þótti okkur ekki taka því að fara heim fyrir eina nótt.

 

 

Linda að heyra í ljósmóðir á LHS og var ákveðið að hún yrði lögð inn hið snarasta.

 

 

Þótt svo að Linda væri búin að missa vatnið, vildu krílin ekki koma út og tók það nærri 3 sólarhringa að koma þeim út og var þá búið að reyna allar aðferðir.

 

 Loks rétt eftir 22 þann 19. júlí komu tvíburarnir út. Bumban farin af Lindu og hún orðin nokkuð þrekuð eftir allt sem á undan var gengið, þó kvartaði hún aldrei og var hvergi bangin, þótt svo að hún væri orðin sár lasin undir það síðasta.

35 vikna tvíbura-meðgöngu lokið.

 

 

Tvíburi B kominn í heiminn. 2410 gr. og var hann dálítið krumpinn og ekki alveg tilbúinn að takast á við lífið, enda var hann enn rólegur í sínum belg og lá ekkert á út.

 

 

Tvíburi B í hitakassanum sínum. Dálítið af vatni er enn í lungunum og verður hann því að vera dálítinn tíma í kassanum.

 

Tvíburi A var hinsvegar mikið að flýta sér út,  enda var það hann sem var búinn að rífa gat á belginn sem olli því að mamman missti vatn. Þó er þessi snáði aðeins 1700 gr. Samt brosir hann framan í heiminn, hæðst ánægður með lífið og tilveruna.

 

 

Vegna þess hve smár hann er enn, þarf hann (tvíburi A) einnig að vera í hitakassanum í nokkurn tíma og fá sykurvatn í æð.

 

 

Amma Kristín að reyna að koma líf í fæturnar á mömmunni eftir allt sem á undan var gengið.

 

 

Mamman að líta á börnin sín í fyrsta sinn að morgni 20. júlí.

 

 

 Mamman og tvíburi A himinsæl við þennan samfund.

 

Tvíbura A líkaði vel að vera komin úr bumbunni og í fangið á stoltri móður sinni.

 

 Tvíburi B er ekki en nægilega nægilega brattur til að koma út úr hitakassanum. En það líður ekki á löngu að hann fær líka að fara í fang móður sinnar.

 

Arnþór Ósmann, stærsti bróðir að heilsa upp á minnsta bróðir, tvíbura A

 

 

Hrannar Örn er nú ekki lengur bara litli bróðir, heldur líka stóri bróðir.

 

Haddi afi kominn úr sveitinni að athuga með dótturina og barnabörnin.

 

A kominn í bað í fyrsta skipti

 

og svo B

 

    

Bræðurnir komnir í föt og verið að gera þá klára fyrir heimferð

 

Pabbinn á leiðinni með þá heim

 

komnir heim í Knarrarholtið

 

og komnir á spena :-)

 

Fyrsti dúrinn heima

 

Afi og Amma kominn að heilsa upp á drenginga

 

Högni Jökull hjá pabba og Ásgeir Jaki hjá mömmu.

Litlu Tvíburarnir í Knarrarholti voru skírðir og fengu nöfn sunnudaginn 5.ágúst.  A fékk nafnið Högni Jökull og er skírður eftir afa sínum í Laxárdal. B fékk nafnið Ásgeir Jaki eftir langafa sínum í Holtsmúla. Skírnarvotta voru Helena og Bjarney, og presturinn okkar hann   sr.Axel  skírði í kirkjunni á Stóra-Núpi.

Eftir skírn var haldin smá skírnarveisla, þar mættu systkini foreldrana, afar og ömmur, lang-afar og lang-ömmur. Litlu drengirnir sváfu vært meðan gestirnir fengu sér kaffi og meðlæti. 

Strax eftir veisluna drifum við okkur öll sex á   Stuðmanna tónleika   í Laugardalum, þar sem allar skemmtu sér mjög vel.

 

Hér eru fyrstu myndir af tvíburunum okkar, úr sónar 3. apríl.